Thursday, July 22, 2004

the restaurant

ok er einhver sem horfir á The restaurant?
Rocco er kokkur sem á sér draum og hann er að reyna að láta hann rætast. hann er að gera þetta fyrir framan sjónvarpsheim. já við erum að tala um enn einn raunveruleikaþáttinn. ekki er verra að Rocco er einstaklega myndarlegur og virkar mjög aðlaðandi. aumingja maðurinn er þó ekki alveg laus við vandræði... yfirkeyrt staffið er alltaf með vesen oftast á það þó rétt á sér. hann er með mismyndarlegt fólk í vinnu hjá sér og þar á meðal er mamma hans sem býr til kjötbollur staðarins sem eru það vinsælasta á matseðlinum mama´s meatballs. hún er algjört krútt og vinnur eins og skepna við að láta draum sonarins rætast. við fáum líka að skyggnast inn í heim starfsfólksins og hvernig því líður frá degi til dags. ég mæli með þessum þætti fyrir alla þá sem hafa gaman af mat og matarmenningu, raunveruleikasjónvarpi og myndarlegum mönnum (og ekki má gleyma þjónum)
þættirnir eru sýndir á skjá 1 á þriðjudögum (veit ekki klukkan hvað) og er endursýndur á fimmtudögum klukkan 18:30

Rebbi

0 Comments:

Post a Comment

<< Home