Tuesday, July 27, 2004

yndælt kvöld....

ég fékk gesti í ávaxtaát og sjónvarpsgláp, uppáhaldskynvillingana mína. Angels in America er nýr þáttur á stöð 2 sem lofar nokkuð góðu. sætir leikarar sem ég vil meina að spili í þeirra liði en þeir Héðinn og Þórir voru ekki alveg sammála. eftir að hafa talað við þrumugelluna Thelmu fórum ég og Þórir til hennar en Héðinn fór heim (hann veit ekki hverju hann var að missa af!!!!). nú húsfreyjan skellti í vöfflur og við gæddum okkur á veitingunum og horfðum á JÁ Dirty dancing hún er æði : það setur enginn Lillu út í horn!. södd og með verk í maganum af hlátri héldum við heim á leið...

mæli með smá nostalgíu á mánudagskvöldum

Rebbi

0 Comments:

Post a Comment

<< Home