Tuesday, July 27, 2004

me and my gay posse......

ok þetta er alveg að verða fyndið! enn stækkar posse-ið mitt. ég fór á fund Frímanns ex brúðubílsmanns og Evu pæju vegna menningarnætur í morgun á Gráa kettinum. fínt fínt svo hélt ég heim á leið og vann í pr fyrir BB og var í tölvunni þar til G Hözler hringdi. nú ég skellti mér í kaffi til hans hin glaðasta til að losna við hausverkin sem var mættur sökum tækninnar. ég sat með honum og horfði á hann hengja upp þvottinn og kvaddi hann því hann var á leiðinni á þing nei ok reyndar í alþingishúsið.... þá mundi ég eftir því að ég gleymdi að fá símanúmerin hjá Freemanns og Eve, ég vissi að Freemanns var að vinna á Jómfrúnni og hún er í næsta húsi við G Hözler svo að ég tölti yfir. hver haldiði að gangi inn á eftir mér annar Bjarni nú þekktur sem Bjarni macho. nú við vorum bæði svo laus að við ákváðum að setjast niður og deila lífum okkar og þrám yfir kaffibolla. we were bonding! æi þið vitið þetta leiklistarpakk...... nú Freemanns settist af og til og slúðraði með okkur. ég að hlægja að því að þetta væri nú hinn samkynhneigðasti staður ekkert nema hommar og móðir mín lesbían, því að staðurinn er mjög vinsæll hjá mömmu. hvað haldiði? haldiði að mamma hafi ekki bara mætt með einhverjum af þeim fjölda klúbba sem hún er í!!!! þetta var bara fyndið. nú báðir kynvillingarnir voru beðnir um að vinna en hvorugur sagði já svo að við létum okkur hverfa en eki fyrr en Thelma þrumugella mætti með sólgleraugun bláu. förinni var heitið á Segafreddo þar sem (kemur á óvart) Fabio var að vinna og Ástralinn sat og pantaði sér Dominos pizzu????? get a life!!! nú við fengum okkur take away kaffi og héldum á Austurvöll. áður en við yfirgáfum Fabio mættu hinar eldhressu Matta og Hlédís í góðum fíling frá G Hözler á leið í TÍVOLÍ en fyrst kaffi... vá skilduði þetta? nú fjórmenningarnir settust meðal ógæfumanna sem lögreglan fjarlægði reyndar skömmu seinna og sleiktu síðustu sólargeisla kvöldsins þar til Mr. Macho þurfti á æfingu JÁ ALLIR Á SUMARÓPERUNA!!!!! og við að ná í nýja bílinn hennar Thelmu og Freemanns að hjóla upp í Álfheima hann er svo duglegur. þannig að ég er kominn með tvo í viðbót í posse-ið mitt. gott eða slæmt ég veit það ekki en þeir eru báðir frábærir og ekki ANAL hehehehehe.....

í öðrum fréttum eða ekki fréttum þá vil ég enn og aftur þakka Þóri fyrir heimsóknina til Thelmu við vorum að fíla söngatriðið í botn! ég meina við vorum eins og vindurinn.... Héðinn fær props fyrir fagmannlegann fréttaflutning af slysinu í Norge... G Hözler fyrir að vera alltaf brosandi maður getur ekki annað en komist í gott skap og fundist heimurinn yndislegur staður þegar colgate mætir....Logi Bergmann sem er ekki beint að gera það fyrir mig en ég var þokkalega að fíla þetta nýja look þ.e. nýja hair-dooið....Mr. Macho fyrir að "skilja" mig.... Freemanns fyrir listrænan kraft..... Helgu Steff fyrir að vera ljósið....Lenu fyrir að rokka feitt í Barce.... OG SÍÐAST EN ALLS EKKI SÍST EIGINKONUNNI FYRIR AÐ VERA HÚN!!!!!!

Rebbi

2 Comments:

Blogger Angurgapi said...

Thad er rosa gaman ad lesa bloggid thitt.thad er ekkert smá mikid ad gerast í lífinu heima.Ég vaknadi ekki fyrr en kl.hálf tvö í dag tví ég og Ingibjórg töludum til kl.thrjú.annars er ég búin ad skoda tvo skóla sem mér líst vel á.hér vil ég vera...

July 29, 2004 at 7:37 PM  
Blogger Gulli said...

Viltu ekki tala illa um Astralann! Eg bara hondla tad ekki, kvedja Gulli - ertu til í að spurja hann hvort hann vilji fara á deit með mér, það þarf ekkert að vera alvarlegt - má í raun ekkert vera alvarlegt...

July 30, 2004 at 2:07 AM  

Post a Comment

<< Home